Leita í fréttum mbl.is

Huglausu sexmenningarnir

Auðvitað stendur Villi þetta af sér. Lætur bara ekkert ná í sig fyrr en allir hafa gleymt þessu. Enda hefur Vilhjálmur enga ástæðu til þess að segja af sér.

Vissulega klúðraði hann REI og setti fjölda milljarða af verðmætum borgarbúa í hættu. Og eina afsökunin hans var að hann hafði ekki séð minnisblöð eða samninga sem honum bar skylda til þess að ganga úr skugga um að væru hag borgarbúa fyrir bestu. Á meðan vissu sexmenningarnir ekki neitt hvað hann var að gera og voru hundóánægðir en neituðu því opinberlega.

Undir áfellisdóminn á þessum vinnubrögðum skrifuðu allir flokkar.

Og þegar þetta komst allt saman upp að þá ætlaði hann að setja REI á brunaútsölu. Ef sá meirihluti hefði ekki sprungið að þá væri búið að selja sameinað REI í dag.
Við stjórnarmissinn kepptust sexmenningarnir að lýsa yfir fullum stuðningi við Villa.

 

Eftir að þeir misstu stjórnina að þá sá Villi að hans eina von var að koma Sjálfstæðisflokknum aftur í stjórn. Þess vegna reyndi hann mikið við Svandísi en hún hafði engan áhuga á honum sama hvað hann bauð. Það var ekki fyrr en hann var búinn að bjóða Ólafi borgarstjórastólinn, verndun flugvallarins og milljarða til þess að byggja nítjándualdarþorp í miðbænum og að ljúga því að hann væri annars búinn að semja við VG, að þá loks fékk hann Ólaf í lið með sér. Minnið hafði hins vegar ekki lagast því hann gleymdi að spyrja hvort Ólafur hefði ekki örugglega varamann.

Þetta fréttu sexmenningarnir bara nokkrum mínútum fyrir fréttamannafund þar sem tilkynnt var um nýja meirihlutann, og sexmenningarnir lýstu allir yfir fullum stuðningi við Villa og sögðu að hann yrði borgarstjóri eftir ár.

Svo núna þegar REI skýrslan er birt að þá grípur Villi aftur til lyganna til þess að afsaka sig.

En enn og aftur er enginn ástæða til þess að hann segi af sér. Vegna þess einfaldlega að sexmenningarnir segjast bera fullt traust til hann og að hann hafi þeirra fulla stuðning svo lengi sem hann er oddviti þeirra.

Þeir hafa einfaldlega ekki hugrekki til þess að standa upp og segja: "Nú er nóg komið, hann hefur gert of mörg mistök og ég mun ekki styðja hann áfram."

 

Þess vegna er það að Vilhjálmur verður næsti borgarstjóri Reykvíkinga.
Það var ekki fyrir en hann var búinn að bjóða Ólafi borgarstjórastólinn


mbl.is Pólitísk staða Vilhjálms rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 712

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband