Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Aldrei þessu vant

Aldrei þessu vant hefur LÍÚ rétt fyrir sér.

Það er hreinlega lífsspursmál bæði fyrirtækja og einstaklinga að taka í notkun nothæfan gjaldmiðil á landinu.

Það hefur enginn minnstu trú á krónunni, ekki einu sinni ríkið sem grefur gjaldeyrishöft upp úr fortíðinni í veikri tilraun til að koma í veg fyrir algjört hrun.

En hver heldurðu að vilji koma með krónur ef hann má ekki ekki fara með þær aftur. Það er eins og að leggja pening inn á bók þar sem upphæðin er bundin til óákveðins tíma.

Við þurfum nothæfan gjaldmiðil strax! Ef ESB ætlar að vera með stæla yfir einhliða upptöku Evru að þá eigum við bara að taka upp Bandaríkjadal. ...eða færeyskar krónur. ...eða rússneska rúblur.  ...eða Latarbæjarpeninga.

Bara eitthvað nothæft. 


mbl.is LÍÚ vill einhliða upptöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðsyfirlýsing ef Bretar koma í veg fyrir lánið

Ef við ættum ekki svona druslu fyrir forsætisráðherra að mundi hann lýsa því yfir opinberlega að það jafnaðist á við stríðsyfirlýsingu ef Bretar og Hollendingar koma í veg fyrir afgreiðslu lánsins frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.

Íslandi er að blæða út og ástandið verður verra með hverjum degi sem líður án þess að neitt gerist.

En það eina sem Geir segir er að hann bara trúi því ekki að þeir verði svo vondir við okkur.Eða eins og einhver sagði, Geir má ekki sjá sandhrúgu án þess að stinga hausnum í hana.

Ég er hræddur um að það sé enginn að stjórna landinu, nema jú Davíð, en eins og Spaugstofan sýndi vel að þá gerir hann illt verra.


mbl.is Styðja illa Íslendinga hjá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 685

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband