Miðvikudagur, 6. febrúar 2008
Lausn Sjálfstæðismanna
Skýrslan um REI virðist staðfesta það að REI málið var eitt allsherjar skandall frá upphafi til enda auk þess sem það virðist vera ljóst að Vilhjálmur vissi um alla samninga en laug því að fjölmiðlum að hann vissi ekki neitt.
Og allt má búast við því að málið sé síðan enn alvarlegra en skýrslan segir til um því orðalag hennar er samkomulagsatriði þar sem hinir (ó)ábyrgu hafa áhrif á hana. Til dæmis má spyrja sig hvers vegna Sjálfstæðismenn báðu um að birtingu skýrslunnar í síðustu viku væri frestað.
Nú sýnist mér á öllu að sexmenningarnir í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins munu kenna Villa um þetta allt og að þeir sjálfir séu alsaklausir.
Þess vegna er þarft að halda því til haga hver lausn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins var á þessu máli. Eftir löng fundarhöld komust þeir nefnilega að því að best væri að sópa málinu undir teppi og selja REI innan þriggja mánaða, sem sagt á brunaútsölu.
Auk þessarar niðurstöðu lýstu sexmenningarnir yfir fullu trausti Á Vilhjálm og stuðningi við setu hans sem borgarstjóra.
Þar með var málið leyst af hálfu Sjálfstæðisflokksins og tilkynnt fjölmiðum, alveg án þess að hafa nokkuð samráð við samstarfsflokkinn. Hann átti bara að styðja þetta eins og góð hækja.
Ég trúi því vel upp á Björn Inga að hann sé spilltur og eigi sinn þátt í þessu. En ef það hefði ekki verið fyrir ákvörðun hans og þáverandi minnihluta að þá væri Vilhjálmur enn borgarstjóri, REI hefði verið selt, með einkaleyfum, þegar markaðurinn var í frjálsu falli og flest af því sem er í skýrslunni hefði aldrei komið upp á yfirborðið.
REI skýrslan áfellisdómur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- September 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.