Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Sorglegt
Ég kíkti á þessa síðu ég vissi ekki hvort átti að hlægja eða gráta.
Auðvitað á að fara yfir síðuna og kæra allar hótanir. Ég veit hins vegar ekki hvort það eigi að kæra kynþáttahatrið þarna því það er svo ótrúlega heimskulega sett fram.
Ég efast um að höfundur síðunnar sé komin á fermingaraldur og vona að viðkomani komist fljótt yfir þetta og hugsi framvegis til síðunnar sinnar með skömm.
Varðandi Hakakrossinn á síðunni að þá finnst mér ekkert að honum. Aðallega vegna þess að það tákn er miklu eldra en nasistaflokkur Hitlers, en einnig vegna þess að ég er á móti því að banna eitthver ákveðin tákn umfram önnur.
Það á að taka á hvers konar mismunun en ef það á að fara að banna hvert tákn sem rasistar finna upp á að nota að þá endar það aldrei.
Rannsókn hafin á kynþáttanetsíðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- September 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er samt væntanlega lögbrot að skeyta svona tákni inn á íslenska fánann...
Annars er ég sammála þér og sakna til að mynda gamla Eimskipa merkisins mikið sem þó var ekki í laginu eins og hakakross nazista.
Heiðar Reyr Ágústsson, 15.11.2007 kl. 00:37
Sjálfur var ég nú að leika mér við að breyta íslenska fánanum þegar unglingur. (reyndar alveg án þess að hakakross, hitlers eða einskipafélagsins, kæmi þar við sögu)
Fánalögin eru eitthvernvegin of fáránleg til þess að dæma rasista með þeim.
En ég tek fram, ef það finnast einhverjar hótanir þarna þá að að kæra síðuna. En að kæra fyrir heimskuna í þessum gaur eða brot á fánalögunum gefur honum bara óþarfa athygli.
Ingólfur, 15.11.2007 kl. 00:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.