Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Er ekki eitthvað að, þegar meirihlutinn brýtur lög?
Er það ekki undarlegt þegar meirihluti borgaranna eru lögbrjótar? Annað hvort hlýtur eitthvað að vera að viðhorfi borgaranna eða þá að eitthvað er bogið við lögin, eða allavega framkvæmd löggæslunnar.
Vegkaflinn sem myndavélin var sett upp á er vegurinn frá Vesturlandsvegi að fyrstu ljósunum við Húsahverfi. Það er lítil umferð gangandi vegfarenda þarna, göngustígurinn er fjóra metra frá veginum og er, að mig minnir, að hluta upphækkaður hitaveitustokkur.
Lengra inn í hverfinu er meiri umferð gangandi vegfaranda, íþrótta og fleiri gatnamót en þar er sami hámarkshraði. Það er hins vegar ekki valið að mæla þar sem brotið er hvað alvarlegast og hættan sem mest, heldur þar sem ökumenn eru nýkomnir af Vesturlandsvegi, ekki almennilega komnir inn í íbúðarhverfi og hættan sem minnst.
Það er því spurning hvort þetta sé löggæsla sem miðar að því að auka öryggi vegfarenda eða bara tekjuöflun fyrir ríkissjóð?
Meirihluti ökumanna ók of hratt um Víkurveg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- September 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lögreglukórinn !!
Þeir eiga að fara að dæmi bretanna og auglýsa í tætlur staðsetningar hraðamyndavéla (kort GPS og á netinu) og hafa þær ÞAR sem hættan ER eða á stöðum þar sem stærri slys hafa orðið oftar en einusinni og þeir sem láta hanka sig þar eiga það BARA skilið
Þessi felu aðferð er bara undarleg og í besta falli einn skatturinn enn.
(ekki það að ég sé hlynntur hraðakstri almennt en skynsemin þarf að vera báðum megin borðsins)
Kv EJE
Eggert J. Eiríksson, 14.11.2007 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.