Leita í fréttum mbl.is

Þráhyggja BíBís

Strax eftir jarðskjálftann fóru í gang vel skipulagðir ferlar og sjúkrabílar voru farnir af stað austurfyrir fjall innan mínútna ásamt lögreglu.

Lögregla og sjúkralið frá fleiri stöðum brugðust einnig við og einhverjir lengra frá fóru í að sjá um svæði þeirra sem fóru á skjálftasvæðið.

 

Ég býst fastlega við því að þeir sem ekki voru á vakt hafi verið kallaðir út, og því hefur það væntanlega verið bílaflotinn sem takmarkaði liðstyrkinn.

 Allt gekk eins og í sögu og fljótlega höfðu fleirihundrað manns brugðist við kallinu og komið til hjálpar.

 

En nei, það er ekki nóg fyrir dómamálaráðherrann, því hann vill nota þetta sem afsökun til þess að stofna varaliðið sitt svo hann hafi það til að siga á vörubílstjóra og umhverfismótmælendur.

Það eina sem hann gleymir er að varaliðið á að vera að stórum hluta byggt upp af Björgunarsveitunum. Hmmm.... hvar voru björgunarsveitirnar á fimmtudag? Sitjandi heima hjá sér uppi í sófa horfandi á sjónvarpið? Ó nei, þær voru kallaðar út innan nokkurra mínútna frá skjálftanum.

 

Björn ætti að hætta þessari þráhyggju og frekar að byrjast afsökunnar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og dómamálaráðuneytinu að hafa brotið á mannréttindum pólitískra andstæðinga flokksins á tímum kalda stríðsins. 


mbl.is Heimild til að kalla út varalið hefði komið sér vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hann BíBí er bara orðin sauður.. sauðþrár og allt það..

Óskar Þorkelsson, 1.6.2008 kl. 23:42

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Allan tíman var til staðar öflugt borgaralegt varalið skipað sjálfboðaliðum. Með því á ég við alla þá íbúa hér á Suðvesturhorninu sem héldu sig á mottunni á meðan stór hluti lögregluliðsins var upptekinn fyrir austan fjall. Ég veit ekki til þess að það hafi þurft að kalla neinn út sérstaklega til þess að allt færi friðsamlega fram rétt eins og á venjulegum degi á meðan hjálparstörf stóðu yfir, enda var mönnum líka brugðið hér við hristinginn og hugur flestra hjá íbúum Suðurlandsundirlendisins. Við Íslendingar erum nefninlega aldrei samhentari heldur en einmitt þegar náttúruöflin sýna okkur mátt sinn og megin, af því megum við sko vera stolt. Sjálfur fór ég t.d. út úr bænum og hélt norðaustur á bóginn þar sem löggurnar voru síst uppteknar vegna jarðskjálfta enda var víða sýnilegt umferðareftirlit á vegunum. Eins og fram kom annarsstaðar á blogginu þá væri miklu meira vit í að styrkja og efla hjálparsveitirnar sjálfar, frekar en að fjölga þessum blessuðu laganna "vörðum" sem ráðast svo kannski bara á unglinga í kjörbúðum, spreyja piparúða framan í saklaust fólk á bensínstöðvum, fara með samsæri og tilhæfulausum ásökunum gegn fólki sem þorir að segja upphátt skoðun sína á umhverfismálum, hnýsast ítrekað með ólöglegum hætti í stjórnarskrárvarið einkalíf fólks, og almennt hafa grundvallarréttindi samborgaranna að engu. Af slíkum óþverravinnubrögðum íslenskrar lögreglu hef ég ítrekaða persónulega reynslu af misslæmu tagi auk þess sem öll tilvikin sem ég nefndi hér á undan eru staðfest og skjöluð!. Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á annað verður maður að taka þessi ummæli Björns eins og hvern annan fasista-áróður sem hann lætur frá sér fara, og í þetta sinn af fullkomnu virðingarleysi fyrir því áfalli sem dundi á Sunnlendingum. Megi það verða honum til ævarandi minnkunar að hafa ætlað að nota þessar hamfarir sem enn eitt tilefnið til slíkrar áróðursstarfsemi fyrir öfgasinnaðri hugmyndafræði sinni. Fyrst honum þykir hugmyndir um lögregluríki svona heillandi ætti hann bara að flytja vestur um haf í það "sæluríki" öfganna og láta okkur friðelskandi Íslendinga í friði, um aldur og ævi!!! A.m.k. ráðlegg ég honum að vera ekkert að heimsækja Selfyssinga á næstunni... ég held þeir vilji miklu frekar fá aðstoð við að laga húsin sín en fá yfir sig meiri löggufasisma en nú þegar viðgengst hér á landi.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2008 kl. 13:59

3 Smámynd: Ingólfur

Ég tek undir það að nær væri að styrkja Björgunarsveitirnar.

Mér finnst t.d. fráleitt hvernig vegagerðin virðist ætlast til þess að þær noti aðeins litaða olíu í björgunnarverkefni en ekki í aðra starfsemi.

Hvað eiga sveitir þá að gera sem kallaðar eru í aðgerð þegar þær eru við æfingar nærri slysstað? Keyra í bæinn, dæla olíunni af tanknum, fylla svo með litaðri olíu og loks þá að fara á slysstað?

Einnig finnst mér til skammar hvernig vegið sé af aðal tekjulind þeirra sem er flugelda salan.

Þar eru aðilar að selja flugelda engum til styrktar nema sjálfum sér og kvarta svo yfir því að bílar Björgunnarsveitanna standi við sölustaði björgunnarsveitanna.

Mér þætti sjálfsagt að gefa björgunnarsveitunum annað hvort einkaleyfi á sölu flugelda, eða þá að leggja á söluna ákveðinn skatt sem færi til þeirra. Þannig gætu einkaaðilar keppt við þá, ef þeir vildu, án þess að það skaðaði björgunnarsveitirnar jafn mikið. 

Ingólfur, 2.6.2008 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 713

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband