Leita í fréttum mbl.is

Úr myrkrinu heyrði ég rödd er sagði, hlæðu, ver glaður...

Úr myrkrinu heyrði ég rödd er sagði, "Hlæðu, ver glaður, þetta gæti verið verra".


Og ég hló og var glaður, og þetta varð verra!

 

Þennan frasa heyrði ég sem strákur, þýtt af þýsku barmmerki, og tók í svolítið uppihald vegna skemmtilegrar kaldhæðninni í honum.

Mér datt hann í hug núna vegna þess að það er engu líkara en að nýi meirihlutinn fari einmitt eftir þessari rödd.

Ólafur og dvergarnir sjö brosa allir voða blítt, keppast við að lýsa fullu trausti á hvern annan og þegar  kannanir sýna að kjósendur bera ekkert traust til þeirra að þá biðja þeir um tíma, frið og að vera dæmdir af verkum sínum.

Og hvað gerist síðan? Núna hafa þeir fengið lengri tíma en síðasti meirihluti til að sanna sig og útlitið hjá þeim verður stöðugt verra.

Ef að maður sæi ekki hvernig borgin er að líða fyrir þetta ástand að þá mundi maður sjálfsagt bara halla sér aftur og bíða spenntur eftir næstu könnun.

Farið nú að vakna upp og gerið það sem er borgarbúum fyrir bestu. 


mbl.is Fylgi D-lista aldrei minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

:)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 1.6.2008 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 685

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband