Leita í fréttum mbl.is

Þú ert þjóðin - Þeir höfðu tækifærið

Fyrir hrunið kom hver viðvörunin á eftir annarri um veikleika bankakerfisins. Þeir höfðu tækifæri til þess að bregðast við en kölluðu í staðinn viðvaranirnar öfund og eyddu góðu orðspori þjóðarinnar í að sannfæra heiminn um að allt væri hérna í himnalagi.

Þeir höfðu tækifæri til þess að hætta að ráða frændur, syni, vini og flokksfélaga í fínar stöður, en þeir létu ekki einu sinni landslög stoppa sig í því. 

Þeir höfðu tækifæri til þess að stoppa í skattsvikaholur sem allir vissu að þeir sem áttu nægan pening voru að nota. Þeir fengu meira að segja sérstaka skýrslu um hvað þyrfti að gera svo ekki töpuðust milljarðar í skatttekjur, en þeir völdu að gleyma henni.

Og þegar þjóðin horfði upp á Víkingana selja sjálfum sér fyrirtækin sín aftur og aftur, skipta Group í undirfyrirtæki sem keypti síðan móðurfélagið með láni í enn öðru dótturfélagi o.s.frv. að þá höfðu þeir tækifæri til þess að setja lög um krosseignartengsl.

Eftir hrunið höfðu þeir tækifæri til þess að stíga fram og segja við þjóðina: "Afsakið, við brugðumst ykkur." En í staðin vörpuðu þeir allri ábyrgð á alþjóðakreppuna, fyrrum vini sína Útrásarvíkingana og almenning.

Þeir höfðu tækifæri til þess að byrja strax að reyna að hafa uppi á þeim fjármunum sem stolið var af óbreyttum borgurum um alla Evrópu, en þegar rannsókn fór loks af stað, að þá var hún bara í skötulíki.

Þeir höfðu tækifæri til þess að viðurkenna fyrir nágrannaþjóðum okkar að hér hefðu vaðið uppi glæpamenn sem hirtu allt sem þeir gátu, og þeir höfðu tækifæri til þess að óska eftir aðstoð við að rekja slóð þýfisins, en reyndin varð uppgufun trúverðugleika okkar og stríð við nágrannaþjóðirnar.

Þeir höfðu strax í haust tækifæri til þess að svara kröfu þjóðarinnar og boða kosningar núna í vor, sökum breyttra aðstæðna, og gefa þannig nýjum aðilum tíma til þess að skipuleggja og kynna sig. En í staðinn gerðu þeir lítið úr mótmælum og kölluðu mótmælendur skríl sem væru ekki fulltrúar þjóðarinnar.

Þeir höfðu alveg einstakt tækifæri til þess að koma á raunverulegum lýðræðisumbótum á stjórnarskrá og kosningalögum sem hefði getað lagt grunninn að Nýja Íslandi. En í stað þess sýndu þeir fram á það að þeir eru ófærir um að breyta stjórnarskránni til betri vegar, þó svo að vitað sé að meirihluti þjóðarinnar styddi það. Enda hefur flokksræðið alltaf styrkst við hverja breytingu á kosningalögum og stjórnarskrá sem gerð hefur verið undanfarinn árátug.

Þeir höfðu tækifæri til þess að hafna milljóna og tugmilljóna króna styrkjum/mútum frá útrásarfyrirtækjunum, en í staðinn tefla þeir fólki  fram á framboðslista sína sem var í lykilhlutverkum í þessu máli.

 

Við gáfum gömlu flokkunum tækifærið - en þeir gerðu ekkert.

Hverjum ætlar þú að gefa tækifæri á laugardaginn?

Sjálfur ætla ég að gefa Borgarahreyfingunni tækifæri, en mundu:

Þú ert þjóðin 

 

(Ef þú ert samála þessu þá vil ég biðja þig um að senda þeim sem þú þekkir þessi skilaboð t.d. með Facebook hnappnum hér fyrir neðan) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

x O

Óskar Þorkelsson, 23.4.2009 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband