Leita í fréttum mbl.is

Málfrelsið þyrnir í augum kristinna eins og múslima?

Deilan um dönsku teikningarnar af spámanninum var sögð snúast um málfrelsið vs tillitsemi við trúarbrögð og í raun var eini tilgangur þeirra að sannreyna málfrelsið með því að ögra múslimum.

Þegar það mál var í hámarki að þá var oft bent á það að kristnir menn mundu ekki gera svona mikið veður út úr því ef einhver teiknaði miður fallegar myndir af Jesú.

 

Hins vegar þegar Gyllti áttavitinn var frumsýndur í Bandaríkjunum að þá voru stórir trúarhópar sem börðust gegn myndinni og það var talið hafa haft veruleg áhrif á miðasölu á myndina.

Best fannst mér ummæli talsmanns einhverra af þeim hópum sem börðust gegn myndinni en þau voru einhvern veginn á þennan veg: Myndin sjálf er ekki svo slæm því þar er búið að draga úr ádeilunni en hættan er að fólk fari og lesi bækurnar eftir að hafa séð myndina.

 

Auðvitað notaði ég mér fyrsta tækifæri til þess að komast yfir bækurnar til að lesa þessa hryllilegu ádeilu á trú en fann reyndar ekki neitt. Bækurnar gagnrýna hvorki trú almennt né þannig séð kristnar kennisetningar. Þær eru hins vegar hörð ádeila á stofnanir sem taka sér vald í nafni trúar og ég tel það líklegast að þeir hafi tekið það til sín sem áttu það skilið.

 

Mér er reyndar nokk sama þó myndin hafi og að framhaldið komi ekki á næstunni því ég er búinn að lesa bækurnar, þökk sé kristna talsmanninum, og þær eru miklu betri en nokkur kvikmynd, en þetta sýnir þó hvernig hægt er að hefta málfrelsi stóru Hollywood framleiðandanna


mbl.is Óvíst með framhald á trílógíu Pullmans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Hreiðarsson

Er ástæða til að alhæfa í þessu sambandi?  Ekki veit ég neitt um Gyllta áttavitann né þá sem börðust gegn þeirri mynd.  Hins vegar veit ég að kristið fólk er mannlegt og breyskt eins og aðrir og enginn með fullu viti heldur öðru fram.  Er þá sanngjarnt að skamma kristna fyrir að vera mennskir og þá um leið ófullkomnir og breyskir manneskjur?  Hér verður að gæta meðalhófs.
Stundum er eins og ríkari kröfur séu gerðar til kristins fólks en annarra.  Auðvitað sýnir það mikla tiltrú til kristinna og er það gott í sjálfu sér. 
Hins vegar eru alhæfingar alltaf erfiðar í meðförum og varhugavert að byggja þær á afmörkuðum tilvikum.  Það er líka athyglisvert að líkja saman einhverri baráttu trúarhópa gegn boðskap einhverrar kvikmyndar við viðbrögð margra múslima við skopmyndunum af Múhameð spámanni, en þau viðbrögð hafa kostað mannslíf. 
En það virðist vera í tísku að hamast gegn kristinni trú hvenær sem færi gefst og þá gjarnan ekki gætt sanngirni.

Valdimar Hreiðarsson, 21.7.2008 kl. 06:52

2 Smámynd: Ingólfur

Ég er ekkert að segja að allir kristnir vilji takmarka málfrelsið ef það stangast á við trú þeirra heldur frekar að benda á að sú tilhneiging er líka til hjá sumum kristnum mönnum eins og hjá sumum múslimum.

Svo er það líka rétt sem þú bendir á að mótmælin í sumum múslimalöndunum fóru alveg úr böndunum. Ég tel hins vegar að það hafi frekar orsakast af fáfræði en eðlismun á trúarbrögðunum.

Málið var viljandi ýkt af bókstafstrúarmönnum til þess að æsa fólk upp, fleiri myndir falsaðar og ýmislegt fleira logið upp á dani. Þetta gekk vegna þess að þar er fólk ekki í neinni aðstöðu til þess að kynna sér hina hlið málanna en á vesturlöndum að þá hefur öfgafólkið hvergi sama vald yfir almenningi í heilu borgunum.

...og þó, í raun má segja að Bush og félagar hafi æst Bandarísku þjóðina í stríð með því að falsa gervihnattamyndir og ljúga upp á Sadam.

Ingólfur, 21.7.2008 kl. 12:17

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Það er í eðli trúarbragða að sannleikurinn sé einhlýtinn og því eru trúuðum oft andskoti uppsiga við málfrelsið.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 22.7.2008 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 685

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband