Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarflokkurinn setur met í ómerkilegum auglýsingum, ætli það hjálpi formanninum?

Framsóknarflokkurinn þessa dagana með minna fylgi en hann hefur nokkurntíman haft í langri sögu sinni og það er ekkert að hækka þrátt fyrir að þeir auglýsi stíft.

Allt útlit er fyrir flokkurinn nái ekki neinum manni inn í höfuðborgarkjördæmunum þremur og þar með falla Siv og Jónína út af þingi auk þess sem formaðurinn nær ekki kjöri.

Og hvernig haldið þið að þessi flokkur bregðist við, jú þeir fara niður á stig sem ekki hefur áður sést í Íslenskri kosningabaráttu,
Þeir setja auglýsingu í birtingu á helstu sjónvarpsstöðvum - ekki um ágæti síns flokk - heldur taka þeir fyrir einn ákveðinn flokk, setja inn formann þess í teiknimyndarformi og setja fram rangfærsur um stefnu þessa flokks í þeim stíl sem maður sér helst hjá þeim sem skrifa nafnlaust vegna þess að þeir vilja ekki setja nafn sitt við þvílíka vitleysu. Framsókn er hins vegar ófeimið við að setja sitt nafni við slíkt skítkast. Ætli svona málflutningur muni bjarga formanninum þeirra.

Nú kaus ég ekki þann flokk sem Framsókn ræðst þarna á og lýgur upp á þá fölskum stefnumálum (ég er búinn að kjósa) en mér blöskrar hins vegar svona málflutningur og lýsi frambjóðendur Framsóknar ómenni sem ekki eiga skilið að setja fót sinn inn fyrir Alþingi.


mbl.is Gallupkönnun: Formaður Framsóknar nær ekki kjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gaukur Úlfarsson

heyrðu, hvernig kem ég höndum yfir þennan æðislega borða sem þú hannaðir fyrir framsókn hér að neðan?

Gaukur Úlfarsson, 7.5.2007 kl. 01:24

2 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Þessi tugga þeirra: Árangur áfram ekkert stopp (á spillingunni) og handbremsustoppið og hræðsluáróðurinn um atvinnuleysi er bara aumkunarvert. Af hverju eru þeir svona heimskir að reyna að markaðssetja ástand sem var við lýði fyrir stríð? Þetta virkar kannski á gamla fólkið en yngstu kynslóðirnar vita ekki einu sinni um hvað þeir eru að tala. Auk þess að ef það er hætta á atvinnuleysi framundan afhverju þurfum við yfir 30.000 erlenda aðila til að manna störfin hér?

Þetta er bara léleg markaðssetning flokks sem er hræddur um að geta ekki borgað kosningastjórunum sínum með feitum embættum.

Að lokum vil ég mælast til þess að Framsóknarflokkurinn verði lagður til hinstu hvílu. Það er fyrir löngu orðin ólykt af hræinu.

Ævar Rafn Kjartansson, 7.5.2007 kl. 01:28

3 Smámynd: Ingólfur

Gaukur, útgáfu af honum er að finna hér:

http://www.aod.aau.dk/stud/iher04/xBekkertStopp4.gif

 og ég tek það fram að ég tel mig geta stutt allt sem kemur fram í honum.

Ingólfur, 7.5.2007 kl. 01:31

4 Smámynd: Gaukur Úlfarsson

Takk!

já, leggjumst á bæn og vonum að Framsókn falli niður í örfylgi!!

Gaukur Úlfarsson, 7.5.2007 kl. 01:50

5 Smámynd: Gaukur Úlfarsson

æ.. ég er svo tæknifatlaður.. hvernig save-a ég þetta til að setja þetta t.d. á síðuna mína??

Gaukur Úlfarsson, 7.5.2007 kl. 01:53

6 Smámynd: Ingólfur

Til þess að setja inn hreyfimyndir þarf maður að fara í HTML ham og setja inn:
<img src="http://www.aod.aau.dk/stud/iher04/xBekkertStopp4.gif">

það ætti að nægja.

Ingólfur, 7.5.2007 kl. 02:13

7 Smámynd: Ingólfur

test

Ingólfur, 18.5.2007 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband