Leita í fréttum mbl.is

Ekki-málefnasamningur

Á fréttamannafundinum talaði Ólafur um að borgarfulltrúar F-listans og Sjálfstæðisflokkurinn hafi komist að samkomulagi um myndun meirihluta í borginni og hafi gert með sér málefnasamning.

Nú er það svo sem satt að borgarfulltrúar F-listans standi það þessu, þar sem hann er eini borgarfulltrúinn. Hins vegar hef ég ekki séð nokkurn annan af F-listanum lýsa yfir stuðningi við þennan meirihluta. Hitt er á hreinu að sá, sem gengt hefur hlutverki Ólafs sem borgarfulltrúi F-listans í um eitt og hálft ár, mun ekki styðja þennan lista.

En hvernig er svo málefnasamningurinn? Jú hann byrjar á því að ekki megi taka ákvörðun um framtíð flugvallarins á kjörtímabilinu. Það er ekki ákveðið að hann verði áfram eftir 2016 og heldur ekki ákveðið að það eigi að flytja hann. Það er bara samkomulag um það að taka enga ákvörðun.

Þetta er einmitt það sem við þurfum í borgarskipulagið, meiri óvissu. 

Ég er viss um að sjálfstæðismenn séu geðveikt ánægðir með svona ekki-málefnasamning.


mbl.is Ólafur: Áherslur komu mjög seint fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Málefnasamingurinn fjallar um meira en flugvöllinn s.s. lækkun skatta sem koma til strax á þessu ári. Hvað varðar flugvöllinn þá hefur ekki enn verið tekin ákvörðun um það hvort hann á að fara eða ekki. Það er alveg ljóst að Reykjavík verður að hafa flugvöll en hvar hefur ekki verið tekin afstaða um og flugvöllurinn fer í fyrsta lagi 2016 og að fullu 2024 svo hvað liggur á?

Vilhjálmur Andri Kjartansson 22.1.2008 kl. 03:47

2 Smámynd: Ingólfur

Þó flugvöllurinn verði allavega að vera til 2016 að þá skiptir máli að undirbúa flutninginn tímanlega, bæði þannig að nægur tími sé til þess að skipuleggja og byggja nýja völlinn og til þess að hagsmunaaðilar viti hvernig flugvallarmál verði eftir 2016.

Þess vegna er mikilvægt að skýrslan um hugsanleg flugvallarstæði verði kláruð eins fljótt og kostur er og að þegar hún er tilbúin að ákvörðun verði tekin, en ekki beðið eftir að kjörtímabilið klárist útaf því einu að einn borgarfulltrúi er á móti því að völlurinn sé færður.

Ingólfur, 22.1.2008 kl. 10:55

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Reykjavík er höfuðborg Íslands og getur ekki bara tekið bestu bitana í því verkefni.  Það fylgir vandi vegsemd hverri og borgin hefur einnig skyldum að gegna við aðra landsmenn, þó hávær hluti borgarbúa virðist ekki átta sig á því.

Flugvöllurinn í Reykjavík er og verður þar sem hann er, til langrar framtíðar.  Annað er ekki raunhæft.  Rétt væri að kjósa um það í almennri kosningu, samfara n.k. alþingiskosningum þar sem allir landsmenn hefðu kosningarétt.

Það er einnig merkilegt, þegar sigldir einstaklingar skilja ekki mikilvægi flugvallarins í samfélagslegu samhengi.  Erlendar borgir eru með lestarstöðvar sem næst miðbænum, flugvöllurinn er okkar lestarstöð.

Hvaða borg, sem vill gera sig gildandi í verslun og þjónustu, flytur aðal lestarstöðina sína langt út fyrir borgarmörkin?

Benedikt V. Warén, 23.1.2008 kl. 17:23

4 Smámynd: Ingólfur

Ég virði þetta hlutverk höfuðborgarinnar og mundi aldrei samþykkja að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur.

Hins vegar finnst mér ekki ganga að hafa flugvöllinn alveg við miðbæinn. Fyrir utan hættuna af honum að þá er varla hægt að taka viðtal í miðbænum án þess að það þurfi að stoppa meðan flugvél fer yfir.

Svo eru það skipulagsmálin, því þetta svæði er hægt að nota til þess að blása lífi í miðbæinn, þó ég gæti reyndar trúað því að það tækifæri yrði misnotað og í staðinn kæmi eitt  skipulagsslysið enn.

Ingólfur, 26.1.2008 kl. 14:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ingólfur
Ingólfur

Starfa sem hönnunarverkfræðingur hjá íslensku hátæknifyrirtæki.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 686

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband